
Spurt og svarað
-
Hlutverk GOF er að hvetja Oddfellowa til golfiðkunnar og gæta hagsmuna StLO með því að hafa eftirlit með golfklúbbnum Oddi sem leigutaka golfvallana. Vinna með GO að áætlanagerð um frekari uppbyggingu í Urriðavatnsdölum og vera StLO til ráðgjafar um málefni svæðisins.
GOF hefur frá upphafi lagt áherslu á að auka golfiðkun Reglusystkina með því að bjóða upp á hagstæð kjör til að leika golf á Urriðavelli/Ljúflingi og tryggja að hið árlega Landsmót Oddfellowa sé haldið.
Oddfellowstúkum býðst að halda stúkumót fyrir bbr og sstr. óháð því hvort þau séu í GOF eða ekki.
-
Árgjaldið í GOF 2025 verður óbreytt frá fyrra ári. 11.500,- kr.
-
Árgjaldi í GOF 2025 fylgir réttur til að leika, annað hvort, 3 hringi á Urriðavelli eða 10 hringi á Ljúflingi.
Þetta jafngildir ekki inneign og hringir færast ekki á milli ára. -
Einungis Oddfellowar geta orðið félagar í GOF.
Til að gerast félagi þarf að sækja um aðlid með því að að fylla út umsókn þar sem fram kemur nafn, netfang, kennitala ásamt st.nr. og heiti stúku. Krafa verður send í heimabanka þegar umsóknin hefur verið afgreidd.
Aðildin tekur gildi þegar krafan hefur verið greidd.
Smellið hér til að fara í umsókn
-
Í ár verða félagar í GOF með sama skráningargiugga og fullgildir félagar í GO, þ.,e. 30 daga fram í tímann og allt að 4 hringi.
Hafið samband við afgreiðslu í síma 5850050 fyrir rástímabókun eða notið Golfbox.
-
Nú er hægt að bóka sig allt að 30 daga fram í tímann og taka frá rástíma fyrir alla 3 hringina sem innifaldir eru á Urriðavelli..
Ef félagi í GOF er í golfklúbbi innan vébanda GSÍ, er hægt að skrá sig á Golfbox en ef viðkomandi er ekki í golfklúbbi innan GSÍ þarf að ringja í afgreiðslu Urriðavallar í síma 585-0050 og bóka rástíma með sama fyrirvara.
Engin forskráning er á Ljúfling. Þar gildir að mæta í skála og láta merkja við mætingu, fara niður að fyrsta teig, setja bolta í boltarennu eða hefja leik ef teigurinn er laus.
-
GOF stendur fyrir árlegu Landsmóti Oddfellowa. Undanfarin ár hefur stúkum verið boðið að sjá um mótið og nýta sem fjáröflun til líknarmála. Þannig hefur höfuðborgarsvæðið og landsbyggðin á víxl séð um mótið og þá haldið það á Urriðavelli eða í nánd við þær stúkur sem sjá um mótið. Næsta Landsmót Oddfellowa verður haldið á Urriðavelli 9. ágúst nk.
Þá hefur stjórn GOF einnig skipulagt í samvinnu við golfklúbb Frímúrara, Frímann, árlega golfkeppni milli þessara félaga. Tímasetning verður auglýst þegar nær dregur.
-
GOF er með samning við GO um heimild fyrir stúkur til að halda mót fyrir sína félagsmenn og maka.
Hver stúka hefur heimild til að halda eitt mót á ári með rástíma milli kl. 13 og 15 á virkum dögum.
Verð 2025 skv. heimasíðu GO (þátttökugjald): 6.950,-
Hafið samband við skrifstofu í síma 585 00 50 til að taka frá dag og rástíma.
-
Golfklúbbar hafa brugðist vel við erindi stjórnar GOF og unnið er að því að semja um afslátt af flatargjaldi fyrir félaga í GOF.
Til að njóta þessara kjara þarf að hlaða félagsskírteini GOF niður í veski og framvísa því ef afsláttar er óskað.
Vinavellir GOF 2025 eru: Gkl. Geysir, Gkl. Patreksfjarðar, Gkl. Hornafjarðar, Golfhöllin í golfherma, M Fitness, Metabolic ReykjavíkÁ bakhlið félagsskírteinisins eru nánari upplýsingar um klúbbanna og afslætti.
-
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og bundin við áramót.
Hafi félagsmaður ekki greitt árgjald í síðasta lagi 1. júní ár hvert fellur aðild hans að félaginu niður.